9. febrúar 2002  #
Dauðþreytt eftir svaka djamm

Vaknaði um hálftólf í morgun og er enn hálfheyrnarlaus eftir gærkvöldið. Ég hef bara aldrei dansað jafnmikið eða skemmt mér svona vel.
Afmælisveislan hjá Assa var mjög skemmtileg, veitingarnar voru glæsilegar og mér fannst sérstaklega skemmtilegt að allir skyldu geta mætt, það er ekki svo oft sem það gerist. Assi hafði fundið upp á alveg frábærum drykkjuleik sem fólst í því að við kölluðum hvert annað millinöfnum okkar allt kvöldið og þeir sem rugluðust þurftu að staupa eplasnafs. Gestir kvöldsins voru því Drífa(Hófí), Ósk (Lena), Dóra (Theó), Rakel (Elva), Hanna (Jóhanna), Sif (Halla), Kolbrún (Bára), Örn (Sigurjón), Jóna (ég) og loks gestgjafinn sjálfur Ólafur (Assi). Þetta var mjög góð hugmynd sem vakti upp mikinn hlátur og þurfti Theó...nei fyrirgefið...Dóra...að taka ansi mörg staup!
     Rétt eftir miðnætti var síðan haldið í bæinn og við Hófí, Halla, Jóhanna, Assi og Sigurjón fórum á NASA. Mikið rosalega er það flottur staður og tónlistin alveg meiriháttar. Við dönsuðum samfleytt frá rúmlega hálfeitt til hálffjögur fyrir utan tvær stuttar klósettferðir. Vanalega finnst mér leiðinlegt að fara í bæinn eftir partý en þetta var frábært. Kannski maður fari núna að fara reglulega í bæinn til að dansa frá sér vit og rænu á NASA. Topp staður!


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum