7. apríl 2002  #
Sjónvarpsrómantíkin

Ekki veit ég hvað hefur komið fyrir þessa blessuðu D-bekkinga í Kennó. Við vorum bara 7 (að kærastanum hennar Jóhönnu meðtöldum) og allir voru í mjög rólegum gír. Þetta var eiginlega bara saumaklúbbur nema með bjór og salsa í staðinn fyrir hnallþórur. Ekkert var dansað og enginn nennti í bæinn á eftir. Það var alveg gaman að hittast og spjalla en þetta var ekki alveg hörkustuðið sem ég hafði verið að hlakka til.
Amma Dídí (amma hans Jóa) bauð okkur Jóa og mömmu í mat í kvöld. Hún á 69 ára afmæli á morgun og var með matarboð fyrir afkomendur sína og fylgifiska. Hún bauð upp á góðan, ekta ömmumat: kjöt í karrý, flatkökur með hangikjöti og læri. Ég hugsa að allir hafi farið saddir og sælir heim.
Við komum heim rétt í tæka tíð til að fylgjast með vinum okkar á Glenbogle setri. Archie gerir sér enga grein fyrir þeim rómantísku hugleiðingum sem eru að gerjast í kollinum á Lexie - það verður að gaman að sjá hvort það þróast eitthvað á milli þeirra í komandi þáttum.


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum