24. maí 2003  #
Grillveisla á sveitasetri Magga mega

Sól og sumar í dag :) Ákaflega ljúft! Og ekki skemmir það fyrir að það skuli vera komin helgi, og það m.a.s. Eurovision-helgi! Ekki slæmt það! Ég þarf einmitt að henda einhverju ofan í tösku á eftir því í fyrramálið dríf ég mig af stað í Eurovision-partý á Selfossi. Ég vona bara að mamma láti okkur ekki horfa á keppnina úti á sólpalli. Mér skilst nefnilega að frúin vilji helst bara sitja úti á nýja fína pallinum þessa dagana, sama hvernig viðrar - hún reynir að telja mér trú um að það sé alltaf sól á Selfossi þessa dagana...! ;)

Fór ásamt Elísabetu lengst upp í sveit (að mér fannst) í grillveisluna á setrinu hans Magga megabílstjóra. Já, á setrinu hans Magga því Maggi býr nefnilega á setri. Þvílíkt hús! Hátt til lofts og vítt til veggja, risapallur og síðast en ekki síst hesthús með átta hestum.
     Maggi var rausnarlegur. Maturinn hefði getað mettað þúsundirnar og vínið flæddi líkt og frelsarinn sjálfur stæði sveittur inni í eldhúsi við að umbreyta kranavatninu. Ég var reyndar á bíl svo ég lét mér duga Sprite.
     Eitthvað var Maggi svekktur yfir því að ég skuli hafa stungið hann af í sumar. Hver eigi nú að senda honum transfer- og pickupföx með aulahúmor, "góðlátlegu" gríni og teiknuðum myndum af sólum og langferðabílum?!? En hann lifir þetta nú vonandi af ;)


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum