25. maí 2003  #
Eurovision og einkunnir

Eurovision er lokið... einu sinni enn.
Ísland fór tómhent heim... einu sinni enn.
     Ég er ekki hrifin af laginu sem vann né öðrum þeim lögum sem lentu ofarlega. Ekki get ég sagt hvaða lag mér hefði fundist að ætti að vinna í staðinn, mér fannst ekkert eitt skera sig alveg úr en mér fannst tyrkneska lagið bara ekki gott. Kannski ég ætti að prófa að hlusta á það án þess að hafa söngherfuna og bossadillarana fyrir framan augunum á meðan, það eykur kannski gæði lagsins.
     En Birgitta stóð sig alveg ágætlega að mínu mati (enda 4. besti árangur okkar hingað til), söng vel, var voða sæt en fór ekki niður á sama plan og flestar aðrar kvensöngkonur í keppninni sem héldu að þær væru bara komnar til að stinga brjóstum og rassi framan í myndavélarnar. Guðbjörg systir stakk upp á að keppnin yrði framvegis kölluð hæfileikakeppni eða danskeppni þar sem þetta virtist sjaldnast snúast um lagið heldur framsetningu þess á sviði. Kannski það mætti bara gera útvarpskeppni úr þessu, svona til að tryggja að það séu lögin sjálf en ekki ljósashowin, bossarnir og brjóstin sem eru að hala inn stigin... ;)

Nú eru allar mínar einkunnir nema ein komnar inn. Þessi eina sem vantar er bara 1 stk. "staðið" sem er alveg pottþétt að mun ekki breytast í fall svo það væri nú ósköp gott ef hægt væri að smella henni inn svo ég fái námslánin. Reyndar er brautskráningin líka skráð inn á einkunnaspjaldið mitt með ólokið, svo það er spurning hvort ég þarf að bíða fram til 14. júní með að fá staðið í þann reit svo LÍN vilji láta mig hafa pening. Vonandi að svo sé nú ekki.


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum