22. febrúar 2004  #
Kaffihúsarölt og kjúklingur um miðja nótt

Kaffihúsaferðin okkar Sigrúnar varð flóknari en við höfðum reiknað með. Við tókum rúntinn í bænum til að kanna hvaða kaffihús væru í boði, svona áður en við ákváðum okkur. Við ákváðum loks að byrja á Kaffi Central í kjallaranum á Skólabrú. Þar var allt lokað vegna breytinga svo við gengum yfir á Litla ljóta andarungann. Þar fengum við svo ömurlega þjónustu á þessum annars indæla stað að við fórum út aftur. Algjör synd.
Fórum næst á Café Paris þar sem allt var troðið út úr dyrum. Vorum farnar að örvænta hvort við þyrftum bara að fara heim og fá okkur Swiss Miss.
Enduðum á Kaffi Viktor þar sem við lögðum undir okkur stórt svæði og höfðum það huggulegt langt fram eftir. Við erum nú meiri kellurnar en ég held við höfum talað um skóla og kennslu ca. 95% tímans :) Greinilegt hvað skiptir okkur mestu máli! Á leiðinni út rakst ég á Simma frænda, ekki oft sem við hittumst.

Ekki var ég mjög syfjuð þegar ég kom heim (veit ekki hvort það var alltof langi fegrunarblundurinn sem ég tók um miðjan daginn í gær eða hvort það var þessi eini bolli af Swiss Mocca....) en við Jói gerðum ekki tilraun til að fara að sofa fyrr en rétt fyrir þrjú. Þá fór í gang gífurlegt málæði (aðallega af minni hálfu ;) hehe) og við sofnuðum ekki fyrr en um fimmleytið, eftir að hafa farið fram og borðað afganginn af kvöldmatarkjúklingnum. Alltaf svolítið skemmtilegar svona kjánalegar blaður-/átnætur en sem betur fer gerast þær nú ekki oft því ekki get ég sagt að ég hafi verið úthvíld þegar ég vaknaði um tíuleytið í morgun og gat ekki sofið meir...


Leggja orð í belg
1 hefur lagt orð í belg
23. febrúar 2004 15:45:42
Það er rétt, við töluðum ansi mikið um vinnuna!Skrýtið...
Þetta lagði Sigrun í belginn


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum