13. mars 2004  #
Matlock-syndrómið
Nú er ég hrædd um að Sigrún vinkona skammi mig...
Ég lagði af stað í búðarrápsleiðangur, aðallega til að kaupa mér nýjar buxur. Planið var að kaupa ekki gallabuxur í þetta skiptið en samt einhverjar svona sterkar og góðar buxur sem ég gæti notað í vinnuna (það er ekki hægt að vinna með 6 ára börnum í hvernig buxum sem er!). Ég byrjaði á því að fara í Zikzak tískuhús sem er, eins og ég hef áður nefnt, algjör draumabúð fyrir mig. Já, ég var sem sagt alveg búin að gíra mig inn á að skoða vel allar buxur nema gallabuxur, en hvað haldið þið að ég hafi séð um leið og ég kom inn... Gallabuxur, alveg eins og elsku uppáhaldsbuxurnar mínar (sem ég á þegar tvennar af...). Matlock-syndrómið gerði strax vart við sig. Ég mátaði til að vera viss um að þetta væru sömu buxurnar og mátaði líka fullt af öðrum "ógallabuxum". "Ógallabuxurnar" pössuðu hins vegar engan veginn...og ég fór út með tvennar buxur í viðbót af draumabuxunum mínum og á nú fernar eins. Ég veit, ég veit, ég á að vera aðeins frumlegri en ég veit að þessar eru þægilegar og góðar og æðislegar og svo framvegis. Og ég lofa að halda áfram að leita að buxum sem ekki eru gallabuxur! :) Í staðinn var ég bara pínulítið frumlegri í efri pörtum og keypti mér þrjá flotta boli.

Leggja orð í belg
5 hafa lagt orð í belg
13. mars 2004 16:18:41
Skammstu þín!!
Þú ert gjörsamlega heltekin af gallabuxunum og þær hljóta að vera ROSALEGA þægilegar! Þú færð plús svo framarlega sem þú kaupir þér ekki alltaf eins boli:)
Þetta lagði Sigrún í belginn
13. mars 2004 16:27:05
Þægilegar
Já, þær eru nefnilega rosalega þægilegar af því þetta eru svona teygjuefnisgallabuxur :) Ég kaupi sem betur fer aldrei svona stífar, gæti aldrei lifað af daginn í svoleiðis buxum.
Þetta lagði Sigurrós í belginn
13. mars 2004 16:31:54
P.S.
Og ég gleymdi að nefna að þær kostuðu nú bara 3000 krónur parið svo að þetta voru nú algjör kostakaup...
Þetta lagði Sigurrós í belginn
14. mars 2004 09:18:04
Haaaa??? Áttu fjórar EINS buxur? Please segðu mér þó að þær séu þó ekki eins á litinn...??
Þetta lagði Bára í belginn
14. mars 2004 11:57:51
Hehe
No komment um litinn... ;) hehehe
En vitið þið hvað? Ég var að fara í aðrar buxurnar núna og sé að þær eru bara ekki alveg nákvæmlega eins! Það er smá klauf á þessum nýju :) Og hananú ;) Sé reyndar að þær eru ekki alveg nákvæmlega eins flottar í sniðinu (þó þær séu eiginlega nákvæmlega eins). Kannski maður skipti bara öðrum þeirra og fái sér fleiri boli? ;)
Þetta lagði Sigurrós í belginn


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum