2. janúar 2007  #
Það bar til um þessar mundir...

Okkar Jóa bíður það verkefni nú á næstu dögum að fylla út alla nauðsynlega pappíra vegna komandi fæðingarorlofs. Ég hef þegar verið vöruð við því að þetta ferli sé einn alls herjar frumskógur og það sé endalaust af skjölum og vottorðum sem þurfi að redda héðan og þaðan.

Hins vegar kárnar nú heldur gamanið því nú er Fæðingarorlofssjóður víst fluttur á Hvammstanga . Spurning hvort þeir séu með opið um helgina ef við fáum okkur bíltúr norður... ;)

Eins gott að Íslandspóstur skuli enn vera starfræktur - eða hvað? Annars yrði þetta eins og í jólaguðspjallinu...

Það bar til um þessar mundir, að boð kom frá Fæðingarorlofssjóði, að öll fæðingarorlof skyldu skrásett á Hvammstanga. Þá fór og Jóhannes úr bænum Kópavogi, til Hvammstanga ásamt Sigurrós eiginkonu sinni sem þá var þunguð. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari.

Einhver sem veit stöðuna á gistiheimilum Hvammstanga...?


Leggja orð í belg
4 hafa lagt orð í belg
2. janúar 2007 23:24:28
Heyrðu já það er lítið hótel þar... annars hlýturðu að geta fengið inni hjá Röggu ef allt fer í hart :)
Þetta lagði Jóhanna í belginn
3. janúar 2007 00:15:34
Hún hló, hún hló, hún skelli, skellihló
Þú ert ótrúleg Sigurrós mín. Ég hló mikið að þessum pistli. Ég sé ykkur alveg fyrir mér.
Þetta lagði Mamma í belginn
3. janúar 2007 11:18:51
HAHA;) Annars held ég að þetta skipti litlu máli, ég fór nokkrum sinnum þarna niður eftir til að reyna að fá svör- en maður fær engin!! Þeir segja bara já flott allt komið og svo fær maður bréf seinna um allt sem vantar!! Skemmtilegt
Þetta lagði Ingunn í belginn
10. janúar 2007 09:21:21
OOOOOOOOOOOO heppin að þurfa að fara til Hvammstanga híhí ;). Get sko reddað ykkur gistingu á nokkrum stöðum - jafnvel bara á sjúkrahúsinu ;) ;) Annars tekur Þinghúsið við fólki í gistingu. Þannig að engar áhyggjur!
Þetta lagði Theó í belginn


Á nýju ári

Þetta er nú engin alvöru færsla, vil bara koma með nokkrar smávægilegar tilkynningar :)

Tilkynning 1:
Jói er búinn að vera að prófa sig áfram með spamvarnir fyrir gestabókina og orðabelginn og gestabókin hefur nú verið opnuð aftur í prufuskyni. Elín er þegar búin að nýta tækifærið og skrifa inn nýárskveðju og nú er bara spurningin hvort fleiri ríða á vaðið? ;)

Tilkynning 2:
Stefa mín er komin með nýja heimasíðu og ætlar að rísa sem kröftugur fönix úr bloggösku síðasta árs. Hvet ykkur til að líta við á blogginu hennar, hún Stefa er svo skemmtileg :)

Tilkynning 3:
Ja, það var svo sem ekki fleira í bili - svo að textinn um "nokkrar" smávægilegar tilkynningar passar líklega ekki... Ekkert meira markvert að gerast fyrir utan það að Bumba litla stækkar og stækkar, sparkar og sparkar. Eiginlega kominn tími á næstu bumbumynd - reyni að redda því hið fyrsta og skelli svo einni hérna inn fyrir ykkur sem eruð ekki svo heppin að hitta mig reglulega ;)


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum