Ef þú giftist mér

Ég skal kaupa þér kökusnúð
með kardimommum og sykurhúð,
ef þú giftist, ef þú bara giftist
ef þú giftist mér.

Ég skal gefa þér gull í tá
og góða skó til að ganga á,
ef þú giftist, ef þú bara giftist,
ef þú giftist mér.

Ég skal elska þig æ svo heitt,
að aldrei við þurfum að kynda neitt,
ef þú giftist, ef þú bara giftist
ef þú giftist mér.

Ég skal syngja þér ljúflingslög,
og leika undir á stóra sög,
ef þú giftist, ef þú bara giftist
ef þú giftist mér.

Ég skal fela þig fylgsnum í,
svo finni þig ekkert pólití,
ef þú giftist, ef þú bara giftist
ef þú giftist mér.


                    Höfundur ókunnur