Stína litla

Á kaupmanninn rétt við búðarborðið
svo brosfögur horfði Stína.
Ég ætlaði bara að kaupa klæði
í kjól á brúðuna mína.

Og hvaða lit viltu ljúfan? sagði hann
á litlu brúðuna þína?
Já, auðvitað rauðan, já ósköp rauðan,
með ákafa svaraði Stína.

Hann brosandi fór og klippti klæðið.
Hvað kostar það? spurði Stína.
Einn kass, hann svaraði, kostar klæðið
í kjól á brúðuna þína.

Í búðinni glumdi við gleðihlátur
er glaðlega svaraði Stína,
Hún mamma kemur í bæinn bráðum
og borgar skuldina mína.


                    Höfundur ókunnur