Sprettur

Ég berst á fáki fráum
fram um veg
mót fjallahlíðum háum
hleypi ég,
og golan kyssir kinn
og golan kyssir kinn.
Á harða, harða spretti
hendist áfram klárinn minn.

Það er sem fjöllin fljúgi
móti mér,
sem kólfur loftið kljúfi
klárinn fer,
og lund mín er svo létt
og lund mín er svo létt.
eins og gæti ég gjörvallt lífið
geisað fram í einum sprett.

Hve fjör í æðar færist
fáknum með.
Hve hjartað léttar hrærist.
Hlær við geð
að finna fjörtök stinn,
að finna fjörtök stinn.
Þú ert mesti gæðagammur.
góði Léttir, klárinn minn.


                    Höfundur: Hannes Hafstein