28. febrúar 2007  #
Fabúla með tónleika í kvöld - 500 kr. aðgangseyrir

Var að frétta að Fabúla, tónlistarkona og samkennari minn í Hlíðaskóla, yrði með tónleika á Domo kl. 9:30 í kvöld. Aðgangseyrir er ekki nema 500 kr. sem er ekki neitt fyrir að komast á tónleika með svo frábærum tónlistarmanni. Ég keypti mér nýjasta diskinn hennar, Dusk, fyrir jól og var þvílíkt heilluð. Fyrri diskarnir eru á óskalistanum mínum.

Ég hefði nú skellt mér á tónleikana í kvöld ef ég hefði tíma, en sé ekki fram á að hafa orku eftir að sitja í einhverja klukkutíma á foreldranámskeiði hjá heilsugæslunni.

En þið hin drífið ykkur að sjálfsögðu! Ég get lofað ykkur að þið eigið eftir að eiga góða kvöldstund og njóta vel!


Leggja orð í belg
2 hafa lagt orð í belg
1. mars 2007 19:31:39
Því miður komst ég ekki! Vona samt að ég eigi eftir að sjá Möggu á tónleikum!
Þetta lagði Rakel í belginn
5. mars 2007 10:33:44
nú ætla ég að vera fyrst með böggið... he he, ég má það af því það er svo stutt í mig :) En Sigurrós mín nú verður þú að fara að vera duglegari að blogga... svo maður geti fylgst með bumbulínu ;).... ég er svooooo spennt!
Þetta lagði margrét arna í belginn


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum