8. febrúar 2003  #
Ég er upp´í skýjunum :)

Já, ég er upp´í skýjunum enda ekki nema von, þú mátt vita það! Ég var nefnilega að koma af Sól og Mána í Borgarleikhúsinu. Frábær sýning með yndislegri ástarsögu. Hún mun lýsa lengi vel í minningunni.
     Hefði reyndar kosið að sitja aftar en á fremsta bekk til að fá betri heildarsýn og sjá dansana betur en það að vera svona framarlega setur mann reyndar í mjög náið samband við leikarana, öll svipbrigði njóta sín betur. Það var heldur ekki amalegt að vera svona framarlega þegar Sálin kom fram á sviðið í lokin til að taka lagið fyrir okkur aðdáendurna.
     Mikið var um tilvísanir í ýmis lög Sálarinnar og var það mjög fyndið fyrst en brandarinn var að mínu mati orðinn frekar þreyttur svona undir lokin.
     Tónlistin af "Öðrum mána" og "Logandi ljósi", sem ég fílaði aðeins rétt mátulega áður en ég fór, naut sín vel og loksins fékk maður botn í textana og skildi um hvað þeir í raun og veru fjalla.
     Þó þetta sé reyndar frekar dýr sýning (3.100 kr.) þá hvet ég ykkur öll sem eitt til að drífa ykkur í Borgarleikhúsið og næla ykkur í miða.


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


Vara, Växa eða Lära - Jo, det är frågoren

Við Sigrún skruppum á óvissuferðarbjórkvöldið á Hverfisbarnum í gær. Röltum nokkra hringi og heilsuðum upp á þá sem við þekktum. Eiginlega of lítill staður til að hýsa kennaranema, tækniskólanema og nokkra til - það mættu alla vega vera fleiri stólar á svæðinu.

Dagurinn í dag hefur svo aðallega farið í fræðileg skrif í lokaverkefninu. Rembdist í gegnum sænskuna í Vara, Växa, Lära og var eiginlega hissa á hvað ég skildi mikið. Fegin að komast loks í smá stuð með þetta, var farin að hafa stórfelldar áhyggjur af því hvað ég er búin að vera sein að koma mér í gang.


Leggja orð í belg
Enginn hefur lagt orð í belg!


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum