8. júní 2004  #
Miss Clumsy

Við skötuhjúin erum oft stundum mjög samstíga, eins og hér um árið þegar Jói braut tönn á Þorláksmessu rétt áður en við lögðum af stað í jólaboð til mömmu minnar og ég braut tönn viku síðar rétt áður en við lögðum af stað í jólaboð til mömmu hans... Já, við reynum að gera hlutina saman, upplifa saman ;)

Þess vegna sá ég það þegar Jói kom krambúleraður heim úr vinnuboltanum í gær að ég yrði nú að gera eitthvað sniðugt honum til samlætis. Ég er nú reyndar of upptekin af útlitinu til að fá mér svona ennismarblett svo að ég réðst á ökklann í staðinn. Ég var sum sé á leið út af eigin heimili og þurfti að komast yfir nýsteypta stéttina fyrir neðan stigann. Steypuviðgerðirnar virtust reyndar orðnar þurrar en ég vildi ekki skemma og tók því langstökk yfir stéttina. Fann pínu óþægindi í fætinum sem ég lenti á en ók samt af stað. Um leið og ég kom út úr bílnum við skólann hrundi ég niður á gangstétt emjandi. Haltraði nú samt í allar mínar útréttingar, enda nýbúin að lesa að konur séu ekki eins uppteknar af sársauka og karlmenn...
En eitthvað er nú ekki alveg í lagi með blessaðan ökklann, alla vega er ég enn haltrandi og sit hér með kæligelspoka bundinn með teygju utan um fótinn.

P.S. Var að taka eftir því að teygjusokkurinn sem ég keypti mér er Vulkan-teygjusokkur. Ekki slæmt ;)


Leggja orð í belg
1 hefur lagt orð í belg
8. júní 2004 21:14:02
Sigurrós mín þar sem þú ert búin að ganga í gegnum eitt ökklabrot um ævina þá vona ég svo sannarlega að þetta sé ekki meira en tognun. Ég óska þér góðs bata.
Þetta lagði mamma í belginn


<< Fyrri dagurNýjasta færslaNæsti dagur >>

Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna

Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)

Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes

Art Lad

Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ

..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á
rss.molunum