Ef væri ég söngvari

Ef væri ég söngvari syngi ég ljóð
um sólina, vorið og land mitt og þjóð
um sólina, vorið og land mitt og þjóð.

En mömmu ég gæfi mín ljúfustu ljóð
hún leiðir mig verndar og er mér svo góð
hún leiðir mig verndar og er mér svo góð.

Ef gæti ég farið sem fiskur um haf,
ég fengi mér dýrustu perlur og raf,
ég fengi mér dýrustu perlur og raf.

Og rafið ég geymdi og gæfi ekki braut
en gerði henni mömmu úr perlunni skraut,
en gerði henni mömmu úr perlunni skraut.

Ef kynni ég að sauma ég keypti mér lín
og klæði ég gerði mér snotur og fín
og klæði ég gerði mér snotur og fín.

En mömmu úr silki ég saumaði margt
úr silfri og gulli, hið dýrasta skart
úr silfri og gulli, hið dýrasta skart.


                    Höfundur ókunnur