Úti er alltaf að snjóa

Úti er alltaf að snjóa,
því komið er að jólunum,
og kólna fer í Pólunum.
En sussum og sussum og róa,
ekki gráta, elskan mín,
þó þig vanti vítamín.
Ávexti eigum við nóga,
handa litlu krökkunum
sem kúra sig í bökkunum.
Þú færð í magann þinn mjóa
melónur og vínber fín.
Þótt kinnin þín sé kannski soldið
köld og blá
áttu samt vini sem aldrei bregðast
af ávöxtunum skuluð þér nú þekkja þá.
Sussum og sussum og róa
ekki gráta, elskan mín,
þó þig vanti vítamín,
þú færð í magann þinn mjóa
melónur og vínber fín.


                    Höfundur: Jónas Árnason