Ríðum heim til Hóla.
Pabba kné er klárinn minn,
kistill mömmu fákur þinn.
Ríðum heim til Hóla.
Ríðum út að Ási.
Ef við höfum hraðann á
háttum þar við skulum ná.
Ríðum út að Ási.
Ríðum heim að Hofi.
Senn er himni sólin af,
sigin ljós í vesturhaf.
Ríðum heim að Hofi.
Höfundur: Guðmundur Guðmundsson