|
24. október 2003 # Litlu jólin Þar sem verslunareigendur virðast ekki skilja hvernig dagatöl virka og reyna að telja neytendum trú um að jólin séu alveg að koma þá ákváðum við Jói bara að halda litlu jólin núna. Ja...reyndar ákváðum við það ekki fyrirfram og reyndar voru þetta ekki alvöru litlu jól...en sem sagt... Það má því með sanni segja að það hafi verið hálfgerð litlu jól hjá okkur. Það var alla vega ofsalega gaman að taka upp úr innkaupapokunum og skoða gersemarnar :) Og ég neita algjörlega að fá samviskubit, það er ekki svo oft sem við dekrum svona við okkur! Ég steingleymdi að blogga um eitt leiðindamál í gær. DVD-spilarinn okkar er aftur hættur að virka. Enda sögðu þeir hjá Radíónausti, sem björguðu okkur svo vingjarnlega í síðasta mánuði, að þeir hefðu aðeins náð að gera fix á tækinu en ekki laga það fullkomlega. Það lítur út fyrir að við verðum að fara að huga að annarri lausn ef við viljum geta horft á DVD-diskana okkar án þess að þurfa að tengja tölvu við sjónvarpið. En eitt er víst, að ég mun ekki framar líta á Samsung sem gæðastimpil þegar ég versla raftæki :(
|
Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna
Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)
Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes
Art Lad
Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ
..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á rss.molunum
2 hafa lagt orð í belg
Á ég að trúa því að eftir að hafa ekið með DVD spilarann til Akureyrar í viðgerð og hælt Radíónausti í hástert fyrir góða þjónustu þá sé tækið aftur hætt að virka. Hvað segja Radíónaustmenn nú. þeir voru búnir að ábyrgjast tækið?
Þetta lagði mamma í belginn
Jaaa...
Já, í rauninni ábyrgðust þeir ekki tækið - þeir gerðu bara við það af góðmennsku en vöruðu einmitt við því að þetta væri ekki fullkomin viðgerð. Ég held við verðum bara að bíta í súra eplið með þetta :(
Þetta lagði Sigurrós í belginn