|
29. mars 2004 # Matur er mannsins gaman YaYa-peran reyndist skemmd svo að hún fór mestöll í ruslið. Ég smakkaði reyndar bita og það var rétt sem afgreiðslustúlkan í 10-11 sagði, þetta er svona mitt á milli þess að vera pera og epli. Ugli-ávöxturinn, sem mér skilst á flestum að sé mitt á milli þess að vera appelsína og greip, er enn inni í ísskáp. Veit ekki hvað málið er núna, fullt af nýjum ávöxtum og þeir eru allir mitt á milli þess að vera einhverjir aðrir ávextir. (Það er svo gaman að vera svona óþolandi bloggari sem útlistar matarræðið sitt í smáatriðum fyrir lesendum hahahaha) Ya Ya og Ugli en engin paprika Ooohh ég vildi að ég ætti papriku til að elda með kjúklingnum. To be continued... Leggja orð í belg 2 hafa lagt orð í belg 29. mars 2004 19:01:32 Ég mæli með því að þú skerir "Ugliinn" í tvennt og borðir innanúr honum með skeið. Bragðið er svona mitt á milli að vera appelsína og grape. Mjög gott. Ég fékk áfall þegar Haukur var kominn um daginn og sé sá svona kvikindi inni í ísskáp. Verð bara að játa að ég hef aldrei sé svona ávöxt fyrr. Líklega haldið í Bónus, að þetta væri eitthvert skemmt dót . 29. mars 2004 20:03:01 Ugli Ég heyrði fyrst um þennan Ugli hjá Báru um helgina og þegar ég sá hann í 10-11 þá varð ég að kaupa einn og prófa. Held ég fylgi ráðleggingum þínum um að borða innan úr honum með skeið. Júragarðslagið Var að heyra og sjá Júróvisjonlagið í fyrsta skipti áðan. Mér brá eiginlega yfir hvað það er leiðinlegt. Og myndbandið er svo suddalega væmið að það er m.a.s. of væmið fyrir mig (sem segir sko ansi mikið...!) Var virkilega ekki hægt að semja betra lag fyrir Jónsa heldur en þetta? Kannski vinnur það á, ég veit það samt ekki. Leggja orð í belg 2 hafa lagt orð í belg 30. mars 2004 08:59:10 Hlustaðu betur! Mér finnst lagið vera mjög gott. Það tók mig nokkur skipti að ná því en það verður alltaf betra og betra eftir því sem á líður. Og ef þú hlustar á hin lögin í keppninni þá kemstu fljótt að því að við erum langt frá því að vera með lélegasta lagið... 30. mars 2004 15:27:32 Já, eins og ég sagði, kannski vinnur það á, ég þarf að hlusta nokkrum sinnum á það í viðbót. Ég skil bara ekki af hverju í ósköpunum það er verið að senda hressan poppara út með svona rólegt vælukjóalag! Við hefðum alveg eins getað sent Bjögga með þetta!
|
Blogg:
Jói
Mamma
Guðbjörg
Magnús Már
Karlotta
Daði
Stefa
Rakel
Marta
Bára
Halla
Elva
Jóhanna
Guðrún Brynja
Karen Elva
Unnsteinn
Ingunn
Simmi
Anna Sigga
Kristinn
Bojskovbúar
Eva
"Afi" (ekki þó minn)
Útlend blogg:
Jan og Elly Melker
Iceland Eyes
Art Lad
Blogg í dvala:
Elísabet
Frú Eva (Stefumamma)
Hófí
Helga Sigrún
Svanhildur
Hulda
Heiður
C-bekkurinn MR
D-bekkurinn KHÍ
..og svo er
fullt af sniðugum
bloggurum
á rss.molunum
2 hafa lagt orð í belg
Váts
Maður bara slefar við þetta lýsingar hjá þér. Ekkert smá girnó :)
Þetta lagði Helga Sigrún í belginn
átti að sjálfsögðu að vera þessar lýsingar......hehe
Þetta lagði Helga Sigrún í belginn